
Kojan
Barnarúmin okkar eru sérhönnuð með Montessori kennslufræðina í huga, svo börnin geti nýtt sér eigið sjálfstæði yfir háttatímann. Kojan hentar einstaklega vel systkinum á mismunandi aldri. Neðra rúmið er lágt og er með öruggum hliðum sem auðvelda litlum krílum að klifra sjálf upp í og úr, án þess að þurfa aðstoð. Kojan sjálf er alls ekki há eins og þær eiga oft til að vera, sem gerir hana mun öruggari en flest aðrar kojur á markaðnum. Viðurinn er náttúrulegur og endingargóður, sem skapar mjúkt og hlýlegt umhverfi í barnaherberginu. Stuðlar að sjálfstæði: Lág hönnun kojunnar hjálpar börnum að kanna heiminn út frá eigin forsendum og gerir hana öruggari í umgengni þeirra. Náttúrulegt efni: Umhverfisvænn, FSC vottaður og endingargóður viður sem gefur hlýlega tilfinningu. Öryggishliðar: Veitir börnum öryggi og hentar fullkomlega fyrir börn sem hreyfa sig mikið í svefni. Auðvelt að setja saman: Einfaldar og skýrar leiðbeiningar fylgja með til að auðvelda samsetningu. Rúmið stuðlar að öruggum og notalegum svefni og treystir um leið forsendur barnsins til sjálfsbjargar og aukins sjálfsöryggis. Nánari upplýsingar Dýnustærð: 90x200 (fylgir ekki með) og er mælt með að hámarks þykkt dýnu sé 13 cm.Stærð rúmgrindar: L208 x B97 x H130Hámarks burðargeta: 2 x 100 kg (100 kg fyrir neðri koju og 100 kg fyrir eftri koju).Efniviður: Rúmgrindin er hönnuð og framleidd í Evrópu úr FSC vottaðri furu frá Póllandi.Umhirða: Þrífið eftir þörfum með rökum klút og þurrki með þurrum klút beint á eftir. Innifalið í kaupunum: Koju rúmgrind, stigi, festingarbúnaður og leiðbeiningar. Ath dýnur fylgja ekki með!
Save on Kojan with a montessori.is promo code
Checkmate is a savings app with over one million users that have saved $$$ on brands like montessori.is.
The Checkmate extension automatically applies montessori.is discount codes, montessori.is coupons and more to give you discounts on products like Kojan.
Similar items





